Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía

Heilbrigðisyfirvöld í Kenía hafa tilkynnt um annað dauðsfall af völdum ebólu. Hin látna, kona á sjötugsaldri, var skyld manni sem lést af völdum ebólu fyrr í mánuðinum. Sjö aðrir fá nú meðferð við veirunni í landinu.Þá er ein kona á spítala í Nígeríu vegna ebólusmits. Konan, sem er svissneskur ríkisborgari, er eiginkona starfsmanns í svissneska sendiráðinu í Abuja, höfuðborg Nígeríu. Hún og eiginmaður hennar voru í Úganda nýverið en höfðu ekki farið til Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó, þar sem langflest smit ebólu hafa greinst í þessum faraldri.Búið er að bera kennsl á 44 einstaklinga sem hún var í samskiptum við og gætu verið útsettir fyrir smiti.Ebólutilfelli af Bundibugyo-afbrigðinu hafa nú greinst í fjórum löndum: Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Úganda, Kenía og Nígeríu. Alþjóðaheilbrigðiss
Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar