Mikill eldur braust út í Arnarhreiðrinu, sumardvalarstað Adolfs Hitlers í Bæjaralandi í Þýskalandi, um klukkan níu í gærkvöld að staðartíma. Enn er barist við eldinn.Þýski fjölmiðillinn Bild greinir frá því að húsið hafi verið nær alelda þegar slökkvilið kom á vettvang og sáust logarnir úr margra kílómetra fjarlægð. Slökkvistarf er erfitt og umfangsmikið enda Arnarhreiðrið afskekkt og hátt upp í fjöllum. Talið er að Arnarhreiðrið hafi verið mannlaust þegar eldurinn braust út.Eldsupptök eru ókunn að svo stöddu en grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða. Lögreglumenn á leið á vettvang mættu mótorhjólamanni sem var handtekinn. Ekki liggur fyrir hvort hann tengist brunanum.Arnarhreiðrið, sem einnig gengur undir nafninu Kehlsteinhaus, er staðsett á fjallinu Kehlstein í Bæjaralandi ofan við bæ