Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna

Að minnsta kosti sjö er saknað eftir að sextán hæða háhýsi hrundi til grunna í Naíróbí, höfuðborg Kenía í gær. Háhýsið er í Eastleigh-hverfinu, sem er þéttbýlt viðskipta- og íbúðarhverfi í borginni. Ekki liggur fyrir hversu margir voru í byggingunni þegar hún hrundi.Háhýsið var í byggingu og ekki var búið að veita leyfi fyrir notkun þess að sögn yfirvalda. Al Jazeera segir að verslanir hafi verið á fyrstu hæðinni og í kjallara hússins en enn voru framkvæmdir á hinum hæðum hússins.Mikil og hröð uppbygging hefur verið í Naíróbí á undanförnum árum. Nokkuð er um að byggingar í landinu séu án tilskilinna leyfa eða uppfylli ekki byggingarstaðla. Í skýrslu byggingareftirlits Kenía á síðasta ári kom fram að 87 prósent bygginga sem gerð var úttekt á væru án tilskilinna leyfa eða uppfylltu ekki bygg
Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar