Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, er mótfallinn breytingu ríkisstjórnarinnar á fyrirkomulagi Loftbrúar eins og hún var kynnt í gær. Mbl.is greinir frá.Innviðaráðuneytið kynnti í gær breytingar á Loftbrú. Bæjarstjórar víða um land eru uggandi yfir fyrirhuguðum breytingum.Mbl.is hefur eftir Ingvari að hann hafi verið opinn fyrir endurskoðun á fyrirkomulagi Loftbrúar en sjö þúsund krónur séu þó allt of lág upphæð. Ingvar segist helst vilja að upphæðin væri 9.500 krónur. Hann sé því mótfallinn breytingunni eins og hún var kynnt í gær en ef upphæðin sé hærri þá sé hann tilbúinn í að skoða það.Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt Loftbrú við kaup á flugi innanlands frá 2020. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem ríkið niðurgreiddi um 40%.Frá og með