25 ára karlmaður lét lífið og fimm eru slasaðir eftir að maður skaut úr byssu úr bíl í nágrannabæjum Parísar í dag. Meðal fórnarlambanna er 12 ára stúlka sem árásarmaðurinn skaut átta sinnum. Ástand hennar er alvarlegt en stöðugt.Maðurinn skaut handahófskennt og vildi valda blóðbaði þegar hann keyrði í gegnum bæina Trappes og La Verriere, hefur Le Monde eftir Ali Rabeh, bæjarstjóra Trappes.Flest fórnarlambanna eru af erlendum bakgrunni. Til rannsóknar er hvort árásin hafi beinst gegn „raunverulegum eða meintum kynþætti, uppruna, þjóðerni eða trú“ fórnarlambanna. RASÍSK HRYÐJUVERKAÁRÁS Emmanuel Macron forseti Frakklands segir árásina rasíska hryðjuverkaárás. „Þetta er vendipunktur vegna þess að þetta er í fyrsta sinn sem hryðjuverk er framið sem miðar að því að drepa samlanda okkar og bö