Verslanir farnar að fyllast af hrekkjavökuvarningi

Rétt rúm vika er í hrekkjavöku og matvöruverslanir eru víða farnar að fyllast af alls kyns varningi fyrir hátíðina. Markaðsstjóri Bónuss segir innkaup á graskerjum hafa tífaldast frá 2015.Verslanir hafa aukið mikið við vöruframboð sitt undanfarin ár í kringum hátíðina og tekur hún allajafna upp álíka mikið pláss og aðrar hátíðir líkt og páskar eða jafnvel jólin.„Innkaupin hafa aukist með áhuga viðskiptavina. Ég held að þegar við byrjuðum hafi þetta verið svona 15 vörutegundir í sérvöru sem eru ábyggilega komnar upp í 100 í ár, á tíu árum,“ segir Ólafur.Þá er spennan farin að aukast hjá yngri kynslóðinni og ætla margir að klæðast búningum ásamt því að ganga í hús og biðja um grikk eða gott.
Verslanir farnar að fyllast af hrekkjavökuvarningi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar