Ekki liggur fyrir hvers vegna fjöldi manna komu saman í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík aðfaranóttina 17. mars síðastliðinn, eða hví ráðist var að einum þeirra með svo alvarlegum hætti að hann hlaut lífshættulega áverka. Sá sem varð fyrir árásinni sagðist hafa mælt sér mót við einn tiltekinn mann, en á móti honum tóku tuttugu til þrjátíu manns.