Á morgun er fyrsti dagur vetrar og frost í veðurkortum víða um land fyrir helgina.Skíðaiðkendur á Akureyri hafa horft löngunaraugum upp í Hlíðarfjall þar sem snjóframleiðsla er hafin svo það styttist í að skíðaveturinn hefjist í bænum.„Við erum búin að vera að bíða eftir að það komi frost og rétt rakastig til að geta sett í gang,“ segir Jónas Stefánsson, rekstrarstjóri í Hlíðarfjalli.Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segist stefna á að opna fjallið fyrir almenning um mánaðamót nóvembers og desembers.„En við erum líka náttúrulega að hugsa um það að búa til æfingaaðstöðu fyrir fólkið sem er að æfa skíði, reyna að lengja tímabilið fyrir þau,“ segir Brynjar.