70 ár frá flóttanum til Íslands: „Ekki með mikið annað en sígarettupakkann sinn í vasanum“

Þess er minnst í dag að 70 ár eru liðin frá því að hópur flóttamanna frá Ungverjalandi kom til Íslands. Þetta var fyrsti hópur flóttamanna sem Íslendingar tóku á móti.Þennan dag fyrir sjötíu árum, 23. október 1956, hófst ungverska byltingin - en það leið ekki á löngu þar til Sovétríkin brutu uppreisnina á bak aftur og hrifsuðu aftur til sín völdin með þeim afleiðingum að þúsundir Ungverja voru drepnar, og margir flúðu.52 Ungverjar flúðu til Íslands. Ungverska menningarfélagið á Íslandi stendur ásamt Rauða krossinum fyrir minningarhátíð í Hlégarði í Mosfellsbæ í dag og kvöld. Mikael Fransson var einn þeirra sem neyddust til að flýja heimaland sitt. Hann bar ungverska nafnið Miklós Tölgyes áður en hann tók íslenska nafnið. FER AÐ HEIMAN Í MIKLUM FLÝTI „Hann fer að heiman sjálfsagt í miklu
70 ár frá flóttanum til Íslands: „Ekki með mikið annað en sígarettupakkann sinn í vasanum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar