Mjódd er fjölfarnasta og stærsta strætóskiptistöð landsins og um hana fara meira en fjórar milljónir farþega árlega.Ítrekað hefur verið ráðist á fólk og það áreitt í og við skiptistöðina.Forsvarsmenn Strætó hafa lengi óskað eftir endurbótum á húsnæðinu og Reykjavíkurborg, sem á og rekur stöðina, verður nú við því. Fyrsta skrefið er að gera biðsalinn hlýlegri.„Þannig að fólki líði betur hérna. Að fólk geti beðið inni og liðið vel í salnum,“ segir Markús Vilhjálmsson sviðsstjóri sölu-, markaðs- og þjónustusviðs Strætó.Þarna á að vera meiri lýsing og fleiri sæti. Þetta á að vera tilbúið í desember.Að sögn Markúsar mun listaverk prýða einn vegg biðsalarins. Hann segir að núverandi ástand biðsalarins minni helst á spítala. „Þetta fær þig ekki til að líða vel í umhverfinu hérna.“Utandyra verður