Langsterkustu vísbendingarnar um jákvæð áhrif af sértækum byggðakvóta

Vífill Karlsson og Sveinn Agnarsson lögðust yfir gögn frá árunum 2008-2024 fyrir nýja rannsókn Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum um strandveiðar og byggðakvóta. Vífill, sem er prófessor við Háskólann á Bifröst, segir þá hafa lagt upp með að meta hvort aukin umsvif vegna slíkra veiða leiði til aukinna atvinnu- eða útsvarstekna viðkomandi sveitarfélaga. Á meðan á rannsókninni stóð hafi hún víkkað út til fleiri hagvísa, svo sem atvinnuleysis, íbúaþróunar, búferlaflutninga, misskiptingar launa, íbúðaverðs og fjölda seldra íbúða.„Við skoðuðum fimm stærstu kerfin, það sem kallaðir eru pottar í íslenski fiskveiðistjórnunarkerfi eða 5,3% hlutinn. Honum hefur verið beitt til að bregðast við óæskilegri þróun í sjávarplássum eftir að kvótakerfið kom,“ segir Vífill. RÁÐHERRA BOÐAR H
Langsterkustu vísbendingarnar um jákvæð áhrif af sértækum byggðakvóta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar