Öryggisgalli í PHP-forritunarmálinu ógnar enn vefsíðum víða um heim. Fagstjóri hjá CERT-IS segir ástandið enn alvarlegt en að hinn almenni borgari þurfi þó ekkert að aðhafast.Gallinn kom í ljós á miðvikudaginn og voru fjölmargar íslenskar vefsíður og kerfi berskjölduð. Alvarleiki gallans var metinn sem 9,2 af skalanum 10.Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri CERT-IS, segir ógnina ekki yfirstaðna og brýnt sé að þeir sem reki vefsíður séu áfram á tánum. Einhverjir hafi haft samband við CERT-IS en þeim sem reki vefsíður hafi verið bent á að fylgja leiðbeiningum hjá þeim sem halda úti PHP. Ógnin sé ekki yfirstaðin fyrr en allir hafi uppfært kerfi sín.„Það var eitthvað tekið eftir því einmitt að íslenskir vefir voru teknir niður annaðhvort til að bíða eftir uppfærslunni eða til að uppfæra eftir að