MIKIÐ AF MÁLUM ENDURFLUTT Á HAUSTÞINGI Þingflokksformaður Samfylkingarinnar gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans á hægagang á þingmálum það sem af er vetri. Að meðaltali klárist um 50 mál á önn og því sé afgreiðsla mála í hefðbundnum takti.„Það má kannski segja að við höfum verið ákveðin fórnarlömb eigin velgengni frá síðasta vori þegar við kláruðum sögulegan fjölda af málum,“ segir Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.„Þá er það einfaldlega þannig að það er verið að endurflytja mikið af málum á haustþingi og þar sem flest öll málin kláruðust síðastliðið vor, þá var ekki sami stampur sem beið eftir því sem leið á haustið.“ MÁLAFJÖLDI EKKI TIL MARKS UM ÓEININGU Aðeins hefur verið mælt fyrir rúmlega 30 af þeim tæplega 160 málum sem boðuð eru í þingmálaskrá