Félög lækna og hjúkrunarfræðinga í Danmörku hafa krafist svara frá Novo Nordisk um lista sem fyrirtækið heldur yfir það hversu líklegir þeir séu til að ávísa af lyfjum fyrirtækisins og hversu mikið þeir séu taldir vita um lyfin.Tölvuhakkarar brutust inn í kerfi lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk í júní og afrituðu töluvert magn gagna. Hluta gagnanna deildi hópurinn með tímaritinu Ingeniøren. Samkvæmt tímaritinu eru 7.000 læknar og hjúkrunarfræðingar á listanum. Þeir eru metnir og settir í flokka í stafrófsröð frá A til D. Í A-hópnum eru þeir sem líklegastir þykja til að skrifa upp á mest af lyfjum Nova Nordisk. Þeir sem líklegir eru taldir til að skrifa upp á minnst enda í D-flokki.DR, danska ríkisútvarpið, hefur eftir Josephine Rathenborg, formanni Læknafélags Danmerkur, að það þurfi að vera