Tíu þúsund manns heimsóttu Reykjaböðin í september

Reykjaböðin voru formlega opnuð 5. september síðastliðinn en þau eru staðsett fyrir neðan Kamba í Hveragerði. 40 starfsmenn vinna í böðunum. Það hefur verið meira en nóg að gera frá því að böðin voru opnuð. Jóhanna Hreiðarsdóttir er framkvæmdastjóri baðanna.„Við erum bara að fá virkilega góð viðbrögð, sérstaklega hér úr nærsamfélaginu og hjá Íslendingum, sem við erum virkilega ánægð með og síðan eru líka mjög margir forvitnir erlendir ferðamenn. Fyrst um sinn þá eru þetta um 70 prósent Íslendingar, sem er mjög ánægjulegt,” segir Jóhanna.Í óformlegri könnun hjá forsvarsmönnum nokkurra baðlóna víðs vegar um landið kom fram að yfirleitt er helmingur gesta erlendir ferðamenn. Bláa lónið sker sig reyndar algjörlega úr en þar eru um 95-98% gesta erlendir ferðamenn.Hvernig lýsir Jóhanna Reykjaböð
Tíu þúsund manns heimsóttu Reykjaböðin í september

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar