Neysluvatn á Siglufirði í lagi

Niðurstaða úr sýnatöku Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra á neysluvatni á Siglufirði sýna að enga E.coli-gerla er að finna lengur. Íbúar hafa verið beðnir um að sjóða neysluvatn sitt frá því 21. október þegar að E.coli-gerlar greindust í því. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu Fjallabyggðar. Grunur er á að vinna við götu í bæjarfélaginu hafi orðið til þess að gerlarnir hafi borist í neysluvatn. Eins og Sigríður Hjaltadóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins sagði við RÚV í dag, þá var mengunin væg og búið var að hreinsa og laga það sem til þurfti. Hún átti von á góðri niðurstöðu úr þessari seinni sýnatöku. Siglfirðingar geta nú drukkið vatnið úr krananum á nýjan leikRÚV / Kristófer Óli Birkisson
Neysluvatn á Siglufirði í lagi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar