Óánægja með breytingar á Loftbrú: „Þetta er bara hrein og klár skerðing fyrir okkur landsbyggðarfólkið“

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að ekki sé hægt að tala um niðurskurð til Loftbrúar. Hann segir þetta tímabæra kerfisbreytingu og að hún eigi að auka fyrirsjáanleika:„Við erum að búa til betra kerfi. Við erum að tryggja það í fyrsta lagi að allir fái sömu krónutölu af hverjum fluglegg. Allir sem eru núna að kaupa miða undir 17.500 krónur fá hærri prósentu en 40%. Það er meiri hvatning en áður þannig að fólk sé að kaupa sér ódýrari miða.“Um 600 milljónir króna hafa verið áætlaðar fyrir Loftbrú síðastliðin ár. Það hefur ekki dugað til og hefur verið mætt með aukafjárveitingum. Árið 2025 fóru útgjöld vegna Loftbrúar 140 milljónir fram úr áætlun.„Nú ætlum við að tryggja Loftbrúna allt árið. Það er ekki fyrirsjáanlegt að við komumst í fjárauka í ár og ekki á næsta ári heldur,“ segir E
Óánægja með breytingar á Loftbrú: „Þetta er bara hrein og klár skerðing fyrir okkur landsbyggðarfólkið“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar