Nautgripur er nefndur; Huppa frá Kluftum í Hrunamannahreppi. Huppa er frægasti kynbótagripur í íslenskri nautgriparækt og hún hefði orðið hundrað ára í ár hefði hún lifað.„Huppa frá Kluftum er merkasti nautgripur í sögu Íslands. Hún var fædd á Skollagróf 1926 og fluttist að Kluftum sem kvígukálfur og eignaðist þar sautján kálfa á fimmtán árum. Og hefur dreift sér um allt land,“ segir Helgi Valdimar Sigurðsson bóndi í Skollagróf. „Það er talað um að allar kýr á Íslandi eigi ættir að rekja til Huppu.“