Forsetafrú Bandaríkjanna, Melania Trump, hefur haft milligöngu um vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í bænum Oleshky í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu, samkvæmt tilkynningu Hvíta hússins. Það á að taka gildi 29. október.Rússar hertóku bæinn 2022 og þaðan hafa borist fregnir af skelfilegu ástandi. Fólk hefur lýst því sem helvíti á jörðu. Rússar hafa setið um bæinn og varla hleypt mat þangað síðan í maí. Fólk hefur soltið og neyðst til að leggja sér gras til munns. Rússneskir hermenn eru sakaðir um að hafa skotið fólk á götum úti. Allt í kringum bæinn eru árásardrónar og jarðsprengjur og því hefur fólk ekki getað flúið.„Bæði ríkin hafa samþykkt að hætta öllum hernaði tímabundið í Oleshky til að hleypa neyðaraðstoð að og undirbúa brottflutning almennra borgara,“ segir í tilkynningu Hvít