Nýta á betur öryggisbúnað sem þegar er til staðar í skólum Hafnarfjarðar og samræma reglur um hverjir komast inn í skólana og hvernig tekið er á móti þeim. Formaður fræðsluráðs segir öryggisúttekt á skólunum ekki hafa verið viðbragð við tilteknu alvarlegu atviki. Heitar deilur urðu í bæjarstjórn þegar fulltrúi Miðflokksins velti upp tengslum öryggismálanna við móttöku hælisleitenda.