Radchenko er einn fremsti sagnfræðingur heims um kalda stríðið en líka utanríkisstefnu Rússlands og Kína. Hann hélt tölu á friðarráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Hann hefur flókinn og áhugaverðan bakgrunn. Radchenko er sonur úkraínskra foreldra sem flúðu hungursneyðina miklu í Úkraínu 1932 til rússnesku eyjunnar Sakhalin.Radchenko flutti að heiman fimmtán ára til Texas í Bandaríkjunum. Síðan þá hefur hann búið og starfað sem sagnfræðiprófessor víða um heim og lengi framan af var hann með tvöfaldan ríkisborgararétt, annars vegar í Rússlandi og hins vegar Bretlandi.„Þessi samtengdi heimur minn splundraðist þann 24. febrúar 2022 þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Við það varð ég fyrir áfalli, sem varði í nokkrar vikur, og á margvíslegan hátt breytti það mér og endurmótaði mig o