Tugir byssueigenda hafa sótt veiðinámskeið sem Skotveiðifélag Íslands hefur haldið undanfarnar vikur. Áki Ármann Jónsson, formaður SKOTVÍS, segir það merki um áhugann og stemninguna hjá rjúpnaskyttum fyrir veiðitímabilið sem hófst í morgun.Námskeiðin eru bæði ætluð fyrir fyrir nýliða sem eru að fá skotvopnaréttindi í fyrsta sinn, en einnig fyrir byssueigendur sem eru að sækja sér veiðikort sem allir þurfa að hafa til að mega ganga til veiða á Íslandi.„Það er um 20% aukning á námskeiðinu frá því í fyrra og við teljum það náttúrulega bara vera af því að rjúpnastofninn er mjög stór í ár og menn eru spenntir að fara. Og eins og Íslendinga er siður þá gera þeir allt á síðustu stundu þannig að menn eru að drífa sig að klára þetta til að komast á veiðar.“ KONUM FER FJÖLGANDI Í HÓPI VEIÐIMANNA E