Ekki kemur til greina að fresta innleiðingu nýs einkunnakvarða fyrir 10. bekk, segir Inga Sæland menntamálaráðherra. Til stendur að innleiða kvarðann á næsta ári. Hún segir að gagnrýni á fyrirkomulagið eigi rétt á sér, en sé þó stormur í vatnsglasi. SKÓLAR ÞEGAR FARNIR AÐ GEFA EINKUNN Í TÖLUSTÖFUM Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá lokaeinkunn í tölustöfum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir Ingu Sæland menntamálaráðherra að veruleika. Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða í tölustöfum.Innleiðing nýs einkunnakvarða var birt í samráðsgátt stjórnvalda og 116 umsagnir bárust.Fjölmargar þeirra gagnrýna fyrirkomulagið. Fyrirvari breytinga sé of skammur og innleiðingin of hröð og óskýr. Inga Sæland, menntamálaráðherra, segir gagnrýnina storm í vatnsglasi. H