„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki. Það sem gerðist síðasta sumar er auðvitað algjörlega óboðlegt þar sem ferðamenn fóru um víðan völl og ollu miklum skemmdum.“Þetta segir Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.Lögregla fær heimild til að leggja tímabundið hald á bíla sem hafa verið notaðir til utanvegaaksturs samkvæmt frumvarpi sem er til kynningar í samráðsgátt. Náttúruverndarstofnun getur þá látið lagfæra skemmdir vegna utanvegaaksturs á kostnað bílstjórans.Jóhann Páll segir utanvegaakstur geta haft gríðarlegan kostnað fyrir víðerni og landslag Íslands. Nái frumvarpið fram að ganga gæti fólk þurft að greiða margar milljónir vegna slíks.„Ég held að það sé löngu tímabært,“ segir hann.