„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins

„Það er smá eyðimerkurstemning yfir dagskrá þingsins þessa dagana,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún skrifaði pistil í Morgunblaðið í dag sem er að stærstum hluta auður flötur.„Ég held að pistill dagsins skýri sig sjálfur, bæði að efni og formi. Í raun er ég að benda á að það sé helst til lítið að frétta frá ríkisstjórninni.“Hildur segir að oft sé hægagangur að hausti til. „En þetta er óvenju íburðarlítið, verður að segjast. Það eru heldur engin þingmannanmál, eða fá, sem eru sett á dagskrá.“Aðeins hefur verið mælt fyrir rúmlega þrjátíu af þeim tæplega 160 málum sem boðuð eru í þingmálaskrá. Hildur segir vekja spurningar hve hægt mál koma inn. Það orki tvímælis fyrir ríkisstjórn sem kalli sig verkstjórn.
„Eyðimerkurstemning“ yfir dagskrá þingsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar