Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi

Íbúar á landsbyggðinni hafa frá árinu 2020 getað nýtt sér Loftbrú við kaup á flugi innanlands. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem voru niðurgreiddir af ríkinu um 40%. Innviðaráðuneytið tilkynnti í dag breytingar á þessu fyrirkomulagi. Frá og með næstu áramótum verður föst krónutala niðurgreidd af hverju fargjaldi. Talan er 7000 krónur fyrir fluglegg eða 14.000 fyrir ferð fram og til baka.Á vef Stjórnarráðsins er haft eftir innviðaráðherra:„Þjónusta Loftbrúar hefur verið þýðingarmikil fyrir íbúa á landsbyggðinni. Markmiðið með breytingum á fyrirkomulaginu er að verja jákvæð áhrif Loftbrúar og tryggja að íbúar landsbyggðarinnar njóti áfram góðs af þeim ávinningi sem Loftbrú skapaði. Við viljum á sama tíma búa svo um hnúta að kostnaður verði fyrirsjáanlegri og innan ramma
Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar