Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir gott að Mosfellsbær sé farinn að bregðast við athugasemdum félagsins vegna óvissu um starfsaðstæður fólks sem sinnir þrifum hjá bænum. Hún segir þó að meira þurfi til. Staðan er að hennar mati til skammar.Mosfellsbær útvistar ræstingum til fyrirtækisins iClean. Efling hefur undanfarið krafist þess að bærinn afhendi sér gögn svo stéttarfélagið geti fylgst með því að farið sé eftir lögum og kjarasamningum við þrif hjá bænum.Sólveig Anna segir skoðanir félagsins hafa leitt í ljós að ekki sé farið að þeim og að fulltrúar bæjarins hafi neitað að afhenda gögnin.„Þetta er staðan og hún er að mínu viti til skammar fyrir þau sem fara með völd í Mosfellsbæ,“ segir hún.Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar sagði í gær að hann vildi eiga góð samski