Harry Bretaprins hefur lýst því yfir að hann vilji sættast við fjölskyldu sína. Samband Harry við bresku konungsfjölskylduna, þar á meðal Vilhjálm bróður hans og Karl föður hans, hefur verið slæmt síðustu sex ár frá því hann ákvað að afsala sér konunglegum skyldum og flytja með eiginkonu sinni, Meghan Markle, til Bandaríkjanna.