Pútín vill fund með Xi og Trump til að ræða frið við Úkraínu

Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur lagt það til að Xi Jinping forseti Kína og Donald Trump Bandaríkjaforseti hitti hann á þríhliða fundi í nóvember til að ræða hvernig finna megi lausn á stríði Rússlands og Úkraínu.Samkvæmt heimildum Wall Street Journal viðraði Pútín fyrst hugmyndir sínar um fundinn í símtali við Donald Trump Bandaríkjaforseta níunda október, á sama tíma og leiðtogarnir tveir urðu ásáttir um að Bandaríkin myndu kaupa dísilolíu af Rússlandi.Talsmaður stjórnvalda í Kreml hefur staðfest við fréttamiðilinn að viðræður um mögulegan fund séu hafnar. Ekki virðist lagt upp með að Úkraína verði á fundinum. BLÍÐKAR PÚTÍN EN GAGNRÝNIR SELENSKÍ Trump hefur varið þá ákvörðun sína að draga úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Hann segir að til að semja um frið dugi ekki að hrekja
Pútín vill fund með Xi og Trump til að ræða frið við Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar