Hið minnsta 1,8 af um tveimur milljónum íbúa Gaza bíður erfiður vetur án fullnægjandi húsaskjóls þegar fjórði vetur harkalegra aðgerða og takmarkana Ísraelsríkis gengur í garð.Alþjóðafólksflutningastofnunin kallar eftir auknum fjárstuðningi við mannúðaraðstoð á Gaza og hvetur Ísraelsstjórn til að slaka á takmörkunum við aðflutning gagna. Þar á meðal er efni til byggingar hátt í níu þúsund neyðarskýla, sem dugi þó skammt.Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gagnrýndi nýverið síendurteknar tafir á afhendingu neyðarbirgða og lækningavara. Staða heilbrigðismála væri verulega slæm enda ekkert sjúkrahús á Gaza fullstarfhæft. Regntímabilið geti einnig leitt af sér aukna útbreiðslu sjúkdóma.Ísraelsk stjórnvöld segjast með takmörkunum vilja koma í veg fyrir að til Hamas berist hlutir sem unnt sé að beita í