Heilsuspillandi mengun berst víða frá skógareldum í Indónesíu

Skógareldar hafa logað vikum saman í Indónesíu og þykkur reykjarmökkur hefur borist til Malasíu, Singapúr og Filippseyja. Erfiðlega gengur að hemja eldana og mengunin heldur áfram að aukast og breiðast út.Breska ríkisútvarpið segir að skógareldarnir séu þeir verstu síðan 2015. Skógareldar eru algengir í landinu og má fyrst og fremst rekja þá til ólöglegra og ódýrra aðferða bænda og fyrirtækja sem brenna skóga til að gera skóglendi að ræktunarlandi.Úrkoma á monsúnregntímabilinu hefur verið um 80% undir meðallagi svo eldarnir hafa breiðst enn hraðar út vegna mikilla þurrka. Yfirvöld vara við því að skógareldarnir geti staðið fram í nóvember vegna lítillar úrkomu.Eitraður reykjarmökkur berst um Indónesíu og er kominn til nágrannalanda. Loft var heilsuspillandi í Singapúr í september en þetta
Heilsuspillandi mengun berst víða frá skógareldum í Indónesíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar