Til stendur að þremur tölum verði bætt við í Lottó og að leikurinn verði framvegis spilaður með 45 kúlum í staðinn fyrir 42. Breytingartillagan hefur verið lögð fram af dómsmálaráðuneytinu í Samráðsgátt að beiðni Íslenskrar getspár.Áfram verður leikurinn spilaður þannig að reynt er að giska á fimm aðaltölur og eina bónustölu.Eftir að breytingin tekur gildi verður ólíklegra að spilarar hreppi allar fimm tölur réttar.Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi eru líkurnar á að fá allar fimm aðaltölurnar réttar rúmlega 1 á móti 850 þúsund.Þegar búið er að bæta við þremur kúlum verða líkurnar hins vegar rúmlega 1 á móti 1,2 milljón.„Eftir því sem fólki fjölgar og þátttakan eykst þá þarf að aðlaga leikinn,“ segir Pétur Hrafn Sigurðsson, sviðsstjóri getraunasviðs hjá Íslenskri getspá. Breytingin sé því að