Hellisheiði lokuð vegna flutningabíls sem þverar veginn
Hellisheiði er lokuð til vesturs í átt að Reykjavík vegna flutningabíls sem þverar veg. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni kemst engin umferð fram hjá bílnum sem stendur. Hægt er að komast leiðar sinnar um Þrengslaveg.