Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í gær, á öðrum degi jóla, afskipti af nokkrum netverslunum með áfengi og lét loka fyrir afgreiðslu víns.Sú ákvörðun var byggð á áfengislögum sem kveða á um að áfengisútsölustaðir skuli vera lokaðir á helgidögum þjóðkirkjunnar, sumardaginn fyrsta, 1. maí, 17. júní og fyrsta mánudag í ágúst. Meðal þeirra var Nýja vínbúðin. EKKI VERIÐ AÐ SELJA ÁFENGI Á STAÐNUM Eigandi hennar, Sverrir Einar Eiríksson, segir aðgerðir lögreglu brjóta gegn réttindum lögmætra netverslana. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður félagsins sem rekur Nýju vínbúðina, segir að lögin taki ekki sérstaklega til netverslunar með áfengi.„Já þetta er svosum ekki flókið, hann er ekki að selja yfir borðið áfengi heldur snýst þetta um það að fólk er að koma þarna og sækja vöru sem það hefur þega