Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Enn má búast við gasmengun í Grindavík — göngugarpar fari með gát

Hraun flæðir áfram til austurs og suðausturs frá nyrsta gígnum við Sundhnúksgígaröðina, að Sandhól og Fagradalsfjalli.Gasmengunar getur orðið vart í Grindavík.Rúv / JónmundurEldgosið er enn þá með svipuðu móti og undanfarna daga, að því er segir í tilkynningu náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands. Óróagögn styðja að virkni gossins sé stöðug. Gasmengun mældist í nótt yfir heilsuverndarmörkum í mæli á Húsafelli, austan Grindavíkur.Því segir Veðurstofan mikilvægt að göngugarpar og aðrir ferðamenn á svæðinu fari að öllu með gát. Spáð er norðan- og norðaustanátt á gosstöðvunum í dag með vaxandi vindhraða. Því berst mengun til suðurs og suðvesturs, meðal annars yfir Grindavík.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera