Hópur fjárfesta hefur náð samkomulagi um kaup á öllum búnaði og lausafé þrotabús Skagans 3X á Akranesi. Þá munu þeir taka á leigu mikið af húsakosti sem fyrirtækið bjó yfir með það að markmiði að hefja rekstur að nýju og byggja upp starfsemi fyrirtækisins á Akranesi. Það er nýtt félag, KAPP Skaginn ehf., sem er kaupandi.Félagið KAPP Skaginn ehf. er í meirihlutaeigu KAPP ehf., tæknifyrirtækis sem sérhæfir sig í tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. Meðal annarra hluthafa KAPP Skagans ehf. eru Eignarhaldsfélagið VGJ og TECTRU S/A, auk lykilstarfsmanna hins nýja félags og ýmsir fjárfestar.Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en vonir standa til þess að unnt verði að hefja starfsemi að nýju á Akranesi þann 1. nóvember næstkomandi.Frá því að Ska