Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði
Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunar virði.