Hvernig virka þyngdarstjórnunarlyf?

Linnulaus eftirspurn er eftir þyngdarstjórnunarlyfjum. Sennilega þarf að fara aftur til þess þegar Viagra kom á markaðinn til að finna lyf sem hefur verið jafn áberandi og vinsælt og Ozempic og Wegovy. Þúsundir færslna er að finna á samfélagsmiðlum þar sem fólk deilir reynslu sinni af þessum lyfjum - og margir með ótrúlegum árangri.Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk setti Ozempic á markað árið 2018. Það er í grunninn sykursýkislyf en fljótlega kom í ljós að auk þess að ná niður blóðsykri fóru sjúklingar sem tóku lyfið að léttast. En hvers vegna?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd