Mikill meirihluti bænda sem eiga hluta í Kjarnafæði-Norðlenska í gegnum Búsæld, ætla að selja þá til Kaupfélags Skagfirðinga. Með því færast meira en níutíu og þrjú prósent kjötvinnslunnar í hendur KS.Í byrjun júlí keypti Kaupfélag Skagfirðinga hlut bræðranna Eiðs og Hreins Gunnlaugssona í Kjarnafæði-Norðlenska. Samanlagt áttu þeir 57% í kjötvinnslurisanum í gegnum eignarhaldsfélagið Búsæld.Hin 43% eru í eigu yfir 400 bænda sem var einnig boðið að selja til Kaupfélags Skagfirðinga.Hluthafar í Búsæld fengu frest þangað til í gær til þess að taka afstöðu til sölunnar. Í dag hafa tæp 85% ákveðið að selja sína hluti, en en rúm 13% hafa ekki tekið afstöðu enn.Aðeins örfáir hafa ákveðið að halda sínum hlut. Hvað á Kaupfélag Skagfirðinga? Kaupfélag Skagfirðinga rekur mjólkur- og afurðastöð, og er