Óvíst er hversu mikill árangur varð af mótvægisaðgerðum Hafrannsóknarstofnunnar til að stemma stigu við hrygningu eldislaxa sem höfðu strokið. Í skýrslunni segir að tíðni stroka úr sjókvíaeldi hér á landi og sá fjöldi strokulaxa sem gengu í fyrra hafi verið meiri en gert hafi verið ráð fyrir.Stefnt er að því að veiða vorgömul seiði í haust til að fá mat á hrygningu þeirra og hversu mikið þeir hafa blandast villtum stofnum.Vitað er að laxar frá öðrum löndum sækja á fæðuslóðir hér við land og því er mögulegt að villtir laxar, eða eldislaxar frá öðrum löndum, gangi í ár hér á landi. AUKINN KRAFTUR Í VÖKTUN Auknum krafti í vöktun vegna áhrifa sjókvíaeldis á íslenska laxastofna má skipta niður í nokkra þætti: * vöktun með fiskteljurum * greiningu meintra strokulaxa úr eldi í ám * uppruna-