Zelensky segir ekki hægt að bíða fram í nóvember
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, bað bandaríska þingmenn um að bíða ekki þar til í nóvember með að efla stuðnings sinn við Úkraínu. Zelensky talaði til þeirra í Washington í kvöld, þar sem hann er gestur leiðtogafundar NATO.Hann sagði alla heimsbyggðina vera að bíða eftir úrslitum forsetakosninganna í nóvember. Tíminn til þess að grípa til stórræðna sé hins vegar núna, sagði hann.AP