ÞJÓÐHETJA EÐA OFSTOPAMAÐUR? Jón Arason Hólabiskup var hálshöggvinn í Skálholti árið 1550 eftir að hafa barist af miklum krafti gegn því að lútherskur siður yrði tekinn upp hér á landi í stað þess kaþólska. Margir Íslendingar hafa litið á Jón Arason sem þjóðhetju er barðist á móti erlendu valdi, aðrir hafa litið á hann sem ofstopamann og yfirgangssegg. Jón Arason var líka skáld og eftir hann hafa varðveist ágæt kvæði. Skáldgáfan hefur vafalaust átt sinn þátt í því að sveipa Jón biskup dýrðarljóma í augum þjóðarinnar. FÁTÆKUR PILTUR HEFST TIL ÆÐSTU METORÐA Jón Arason er talinn fæddur árið 1484, sonur Ara Sigurðssonar bónda og konu hans, Elínar Magnúsdóttur. Faðir Jóns dó þegar hann var á barnsaldri og Jón ólst upp hjá móður sinni á kotbýlinu Grýtu í Eyjafirði. Rétt þar hjá er Munkaþverá