Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og svo virðist sem land sé nú hætt að síga þar. Áfram er virkni í einum gíg.Lítil breyting er á gosvirkni við Sundhnúksgíga frá því í gær. Enn er virkni í einum gíg - þeim hæsta - og óróinn var jafn í alla nótt samkvæmt Veðurstofu Íslands. Skjálftavirkni hefur verið í lágmarki. Þó er sú breyting á að út frá fyrstu GPS-mælingum síðasta sólarhrings virðist sem land sé hætt að síga í Svartsengi. Veðurstofan segir þó full snemmt að fullyrða um það og bíður frekari gagna út frá GPS-mælingum.Sé landris hafið á ný í Svartsengi þýðir það að kvikusöfnun haldi áfram, en að losun kviku í yfirstandandi eldgosi sé nú orðin minni en það sem kvikusöfnun nemur. Þá er kvikan enn á ný farin að safnast upp undir Svartsengi í stað þess að eiga greiða leið út um virka