Samtíminn er flókin skepna. Raunar svo að þegar Kolbrún Bergþórsdóttir, í pistli í Morgunblaðinu, líkti forsetaframbjóðandanum Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur við eltihrelli í Netflix-seríunni Baby Reindeer vegna gagnrýni á fyrrum forsætisráðherra í forsetaframboði, þá kviknaði spurningin: Er Kolbrún yfir höfuð með getu til að greina samtímann og þá samtímabókmenntir? Rökstyðja má að í skjóli valds hafi Kolbrún beitt eineltistaktík með þessum...