Elsti maður heims segir langlífi lukku en hófsemi lykil að heilbrigði
Englendingurinn John Alfred Tinniswood er elsti karlmaður í heimi samkvæmt Heimsmetabók Guinness. Hann segir langlífið heppni eina.Tinniswood er 111 ára gamall, fæddur rétt um það leyti sem fyrri heimsstyrjöldin var að skella á. Tveir eru nýlátnir sem voru ögn eldri en Tinniswood, sem lengi starfaði sem endurskoðandi. Hann segir hófsemi lykilinn að heilbrigði.Hann kveðst aldrei hafa reykt, drekki lítið af áfengi og fylgi engu sérstöku mataræði. Hann hafi þó borðað fisk og franskar alla föstudaga. Tinniswood segir langlífi þó helst mega þakka lukkunni einni, annað hvort lifi fólk stutt eða lengi og hafi ekkert um þau örlög sín að segja.