Fasteignagjöld hækkuðu um 12,7% að meðaltali milli ára
Byggðastofnun fékk Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til að reikna út fasteignamat á sams konar viðmiðunarfasteign í þéttbýli um allt land og eru matssvæðin 103 i 49 sveitarfélögum, því innan sumra eru mörg matssvæði eða hverfi. FASTEIGNASKATTUR VEGUR ÞYNGST Viðmiðunareignin er 161,1 fermetra einbýlishús og 476 rúmmetrar á 808 fermetra lóð. Byggðastofnun reiknaði síðan fasteignagjöld viðmiðunareignarinnar samkvæmt álagningarreglum þessa árs eins og þær eru í hverju sveitarfélagi, út frá fasteignamati HMS. Fasteignagjöldin samanstanda af fasteignaskatti, sem vegur þyngst, lóðarleigu, fráveitugjaldi, vatnsgjaldi og soprgjöldum. Í þessu útreikningum Byggðastofnunar eru sorpgjöldin ekki inni í samtölunni vegna mismunandi aðferða sveitarfélaga við álagningu þeirra og innleiðingar nýrra laga um