Það er logn á Akureyri, frost og götur þurrar og svifryksmengun hefur farið yfir heilsuverndarmörk.„Íbúar eru hvattir til þess að draga úr akstri eins og kostur er. Til dæmis með því að nýta sér almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta,“ segir á vef Akureyrarbæjar.Þá eru þau sem eru viðkvæm fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn, hvött til að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu við fjölfarnar umferðargötur.Í dag klukkan 14 mældi loftgæðamælir Umhverfisstofnunar við Strandgötu á Akureyri, 169 míkrógrömm svifryksagna í hverjum rúmmetra af andrúmslofti. Loftgæði teljast góð þegar sú tala er undir 50.