Nú er upprunninn sá tími þegar rjúpnaskyttur landsins halda til veiða. Fyrsti dagur rjúpnaveiðitímabilsins er í dag. Það stendur mis langt eftir landshlutum, lýkur fyrst á Norðvesturlandi og Suðrulandi 17. nóvember en síðast á Austurlandi 22. desember.Sem fyrr er sölubann á rjúpum.Skytturnar verða þó ekki einar á ferð því lögreglan á Norðurlandi eystra hið minnsta ætlar að vera með veiðieftirlit. Hún hvetur skyttur til að hafa allt sitt á hreinu.Rjúpa á Norðurlandi.RÚV / Ólöf Rún Erlendsdóttir