Ríkisstjórn Donalds Trump hefur sakað embættis- og stjórnmálamenn í Kanada um að hafa óviðeigandi afskipti af bandarískum stjórnmálum í aðdraganda þingkosninganna í næsta mánuði. Sendiráð Bandaríkjanna í Kanada hefur birt sérstakt skjal þar sem kvartað er yfir því að ráðamenn í Kanada taki ásakanirnar ekki alvarlega.