Einn var fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Hellisheiði í kvöld. Heiðin var lokuð í báðar áttir í nokkrar klukkustundir en búið er að opna fyrir umferð. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir tildrög slyssins ókunn. Stuttu eftir slysið varð þriggja bíla árekstur á sama vegkafla en slys voru minniháttar.Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang slyssins. Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.Magnús segir að slysið hafi orðið um tíuleytið í kvöld og var einn fluttur alvarlega slasaður til aðhlynningar á sjúkrahús. Heiðin var lokuð í nokkrar klukkustundir á meðan unnið var að því að tryggja vettvang.Í Facebook-tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi eru vegfarendur beðn